|
04.08.2006 15:38:36 / Trausti Mjóhanns
Núna ættu nú glöggir lesendur síðunnar að hafa tekið eftir að við
höfum flutt okkur á aðrar slóðir.
kjeppirnir.bloggar.is
Farið nú mæta þangað og skrifa eitthvað sniðugt í
kommentin hjá okkur og gefið okkur ykkur sýn í okkar
hugarheima.
»
16.07.2006 17:17:11 / Trausti Mjóhanns
»
16.07.2006 15:35:44 / Trausti Mjóhanns
Jæja félagar, núna er minna en vika í það að sláturkjeppurinn fari
fram! Núna er það stóraspurningin hverjir ætla að
mæta??? Ég ætla að mæta allaveganna.
Hugmyndin er sú að vera ekkert að plana þetta neitt, bara hittast,
tjalda, grilla, drekka, dansa, syngja, kveikja eld. Bara
svona að hafa gaman að.. Já vona að flesti sjái sér fært að
mæta, Kjeppir sem aðrir. Endilega ef spurningar vakna þá er
bara að skella inn spuringu og ég get lofað því að svar mun koma að
vörmu spori. Svo er líka hægt að hringja í einhvern af
okkur.
»
13.07.2006 01:04:21 / Litli Drengurinn
silli sjarmi hér, hef verið að fylgjast með þessum punk ass
bitsjes sigga suð og badass mysu. Vil kasta á ykkur kveðju.
Hvað eruð þið að pæla
endalaust að væla og skæla
bara eintómar kjellingar
en ég er með nokkrar pælingar
hvor er stönginn og hver er gatið
tæki ykkur báða og vindi ofan í vaskafatið
silli er með stærstu hreðjarnar
þannig ykkur er hollast að droppa á skeljarnar
'''''sjásjá silli er out''''
»
12.07.2006 21:15:13 / Trausti Mjóhanns
Baddi Mysa og Siggi Suðræni
hafa verið áberandi á síðu Kjeppanna uppá síðkastið og hafa
erjur þeirra oft gengið langt, oflangt og hefur ritstjórinn
þurft að taka út heilu pistlanna eftir þá, það slæmt hefur
skítkastið verið. En nýlega var málið gert upp og náðist það
allt saman í orð... Bendi á dálkinn Lög og textar, þar undir
má finna það sem þeirra fór á milli...
Spurningin er
náttúrulega sú, hvor finnst þér hafa borið sigur úr
bítum???
»
12.07.2006 01:05:39 / Trausti Mjóhanns
...er tvímannalaust Brooke
Burke!
»
10.07.2006 21:24:04 / Trausti Mjóhanns
Heilir og sælir Kjeppir!
Ég hef verið beðinn auðmjúklega af ykkar heittelskaða Kjeppsmeðlim
T. Mjó, að vera gestapistlahöfundur hérna síðunni. Mjóarinn bað mig
auðmjúkann að henda hérna inn nokkrum línum. Það hefur ekki reynst
auðvelt því að hérna við Miðjarðarhafið er hiti og sviti og margur
girnilegur biti. En ég hef gert mitt besta til að sleppa úr þessu
kófi sem hefur myndast í mínu bóli. Já ég hef lengi vel viljað
hjálpa mínum fjarskylda frænda og get ég ekki séð betri leið en að
senda inn nokkrar línur, sérstaklega eftir að minn helsti
Kjeppinautur og andstæðingur fór einnig að skrifa hérna inn línur!
Já helvítis ómanginn hann Baddi Mysa og þroskahefti kúrekinn hann
Kalli fóru að láta að sér kræla... Já ég hef hérna á þessari
tónleikaferð minni um Suðurhöf stundað mikla sjálfsást og fundið
kærleikann í sjálfum mér enda er það eina leiðin, eina leiðin... Já
ég hef þó einnig verið með ykkur í huga mér og lengi ætlað að koma
ykkur á óvart með nærveru minni, því að hver vill ekki vera í
bólinu með fola sem minnir stundum á bola í bólinu hjá mér er
aldrei logn eða gola. Já maður getur ekki annað en verið ljóðrænn á
stundu sem þessari því að lífið er leikur og ástin er sleikur og
woody's er bleikur!
Mestu gleði fréttirnar eru þó þær að ég er að koma heim og mun
verða leynigesturinn á hinum heimsfræga Sláturkjepp, já úr leyni ég
geymi og yfir strákum ég breimi, ekki vildi ég vera þar á
sveimi...hehehe já sjásjá eins og Snoop sjálfur myndi segja.. Vill
ég óska ykkur öllum til hamingju með það að ég sé að fara koma heim
og verður þá kátt á völlunum og á eftir að klingja í böllunum já og
jafnvel syngja í stöllunum.
Mjá mjá farðu svo frá því Siggi Suðræni er mættur á stjá
Kveðja úr ballarhafi
»
09.07.2006 23:29:18 / Trausti Mjóhanns
»
09.07.2006 13:40:17 / Hr. Birgisson
Hææjj hva segiru skiluru. Bara búið að vera
mega gaman hjá kjellinum um helgina, er búinn að vera með
kiddarana og bara blast the power of the love chainsaw. En
thetta er bara rocking skiluru veðrið búið að vera out there
btw bara ýkt töff lag hjá Einsa töffara skjiluru, já en bara
dísus kræst hvað ég er að fíla þetta. Ok guys verðum í bandi
ég held að það sé eikvað geeeegjað djam niðrí bæ næstu helgi
á sólon eða kaffibarnum btw við bara verðum að mæta allir
saman vera kolcrazy, Jæja ég verðað hringja eikvað bara
loveto ya og heyrumst beibí.
BADDI MYSA over and out
FM fucking rules!!!!!!!!!
»
09.07.2006 06:31:47 / Einsi Kind
Ok, þetta er helber alger snilld! Ég er búinn að hafa samband við
Jonas Altberg -aka- Basshunter og hann féllst á að koma á
Slátukjeppinn '06 og sjá um Ravedanskeppni hjá okkur.
Þetta er að sjálfsögðu mikill heiður sem fellur okkur í skaut hér
strákar, og það er eins gott að þið gerið ykkur ljóst hversu mikið
ég hef lagt á mig til að sjá þetta verða að raunveruleika.
Jonas -aka- Basshunter á meðal annars smellið lag sem er mikill
hittari í Skandinavíu akkúrat núna, það heitir "Boten Anna" Þarna
er ekki verið að syngja um bát.. haha Nei nei,því fer fjarri.
Heldur er hér verið að syngja um Bottan Önnu, en botti er einskonar
AI sem gegnir því hlutverki sem hann er skrifaður til..
Nema í þessu lagi "Boten Anna" þá byggist það á misskilningi, því
að Anna er ekki botti heldur reglulega löguleg ung telpa (ljóshærð
í þokkabót) nema hvað að Altberg heldur að hún sé bara forrit..
HaHa. þvílíkt og annað eins.
Nema hvað, hérna er slóð þar sem gefur að heyra og sjá lag og
myndband við "Boten Anna" Samið og sungið af BassHunter -aka- Jonas
Altberg.. Njótið, og þið munuð eflaust dilla ykkar littla afturenda
líkt og ég gerði fyrst er ég heyrði þetta.
PS ég setti við myndbandið texta svo að allir gætu notið þessa sem
ekki skilja móðurmál mitt.
http://basshunter.m0o.eu/anna/Basshunter_Boten_Anna_English.avi
»
09.07.2006 01:04:10 / Oddur Mjóhanns
Nú vil ég leggja til að við stofnum
drengjaband. Ég
held að það skapi marga mjög áhugaverða
möguleika.
Sjáiði bara hversu töff við gætum orðið.

Kalli Kúreki, Þorsteinn Joð og
Hr. Hasselhoff myndu sóma sér vel
á svona mynd.

Þarna gætu Dr. Sívertsen,
Litli Drengurinn og Gvendarkjeppur komið sterkir inn með sín
faðmlög og fallegu bros.
Ég er kominn með hugmyndir að
myndbandi og farinn að setja niður nótur fyrir fyrstu lögin
okkar. Það er von mín að við gætum komið fyrst fram
opinberlega á Sláturkjeppnum næstkomandi.
»
07.07.2006 00:04:41 / Litli Drengurinn
Já nú er aðeins mánuður í utanför kjeppana, og hríslast yfir mann
sælu tilfining þegar maður hugsar til þess. Það er stíf dagskrá hjá
kjeppunum framundan, Sláturkjeppurinn og svo árshátíðar ferðin
mikla sem landsmenn hafa beðið eftir í ofvæni. Já svíar vita ekki
hverju þeir eiga von á. Íslenskar frjálsíþróttabullur. En litli
drengurinn er og hefur alltaf verið slappur bloggari og er maður
fárra orða og lélegrar stafsetningar, þannig við sjáumst bara í
svíaríki.
»
05.07.2006 19:42:24 / Trausti Mjóhanns
Jæja þá er það ákveðið.
Kindin Einar og Kalli kúreki voru að hafa samband við mig og
þeir eru búnir að fá samþykki fyrir því að Sláturkjeppurinn
fari fram að Heiðarbæ þann 21-23 júlí. Þeir eru búnir að vera
í ströngum samningarviðræðum við ábúendur og nágranna í alla
nótt og núna kl 18:43 í kvöld náðist loksins samkomulag um að
af hátíðinni yrði. Þannig að allir sem eru skemmtilegir takið
frá þessa dagsetningu. Taka verður með sér tjald og aðrar
útilegu græjur, kannski eitthvað á grillið og ekki verra að
liðka látúnsbarkana.
Kveðja skemmtinefndin
»
04.07.2006 23:47:03 / Hr. Birgisson
Fyrsti hluti kjeppaferðarinnar í Ásbyrgi má finna hér, eftir margar
áskoranir og hótanir jafnt nótt sem dag, þá ákvað ritstjórnin að
breyta aðeins til og ég set bara link hérna í staðinn. Bonnie
Tyler dúettinn á góðri stundu
»
03.07.2006 22:30:41 / Trausti Mjóhanns
Ég og Guðmundur vorum rétt í þessu að setja okkur í stellingar og
fengum þá hugmynd að fara að setja kraft í að koma Sláturkjeppnum
2006 af stað! Hugmyndin er sú að halda hann 22-23 júlí heima
hjá Heiðarbæjarbræðrum að Heiðarbæ. En svo að gangi eftir þá
verða þeir að ræða það við yfirvöld sín og plana þetta með
okkur. Spurning um að taka til hendinni aðeins og kveikja bál
og hafa svoldið gaman með tjald og bjór.
Hvað segir fólk annars með þessa dagsetningu 22-23 júlí???
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|